Ég fíla dilladilla...

I'ts all in the hips...

09.11.2007 13:34:42 / snjolaugh

Ghana beibí!!! ;)

Ég er komin með nýtt blogg!!!!

Þar sem að þetta fjandans Blog Central var á síðasta séns hjá mér og ég get ekki sett inn nýja færslu, þá ákvað ég að færa mig yfir á blog.is, nýja bloggið mitt er semsagt:

 

 

 

www.snjolaug.blog.is

 

 

 

:D Er ekki alveg byrjuð að blogga þar, en er þó búin að setja upp síðuna ;) Kemur inn færsla fljótlega!

 

 

 

Kveðja, Snjólaug

 

 

 

 

 

 

 

 

Jæja, þá er loksins farinn að koma smá botn í mín mál!! ;)

Ég verð ekki á landinu yfir jól og áramót!!! 8| Víí hvað það verður spennandi! :haha:

Ég er semsagt á leiðinni til Ghana!!!
Já takk, nánar tiltekið Accra, sem er höfuðborgin. Ég er að fara þangað sem sjálfboðaliði, sótti um að læra keramikgerð og að vinna á barnaheimili. Þetta verður ekkert smá spennandi og eflaust mikil lífsreynsla!
Verð í þrjá mánuði og svo er ég að hugsa um að taka mér smá tíma í að ferðast smá. Fílabeinsströndin er bara næsta land við hliðiná og það hefur lengi verið draumur að fara þangað.

Og það er u.þ.b. 30 stiga hiti þarna núna!!!! :lol::lol::lol::lol:

Er búin að fara í nánast allar sprauturnar, var meðal annars í þeim í gær, nánar tiltekið 4 sprautum, á eftir að fá þá tvær í viðbót og ég er reddý!! Ég er samt helaum í handleggjunum núna, á erfitt með að lyfta þeim!! 8|

Ég stefni á að fara út í vikunni 26. nóv til 30. nóv og ef að allt leyfir, þá er aldrei að vita nema ég haldi uppi ferðabloggi hérna!! ;)

En yfir í önnur mál:

Ohh mér langar samt svo á tónleikana með Bjögga, Jólagestir!!! Ég er svo mikið jólabarn og elska jólin og jólatónlist!!! Ömurlegt að missa af þessu, en það verður eflaust líka gaman úti og meira öðruvísi :) Plús það að það seldist upp á klukkutíma á þessa tónleika, greinilega mjög
vinsælir!!

Af mér er annars lítið að frétta, bara vinna, vinna, vinna, síðasti dagurinn í dag, get ekki beðið eftir helginni, reyndar búið að bjóða mér á árshátíð, en ég er enn að ákveða mig hvort ég eigi að fara!! :P Er alltaf að væla um að enginn vilji bjóða mér á deit svo að ég geti notað alla fínu kjólana mína, en svo loksins þegar mér er boðið eitthvað, þá er ég ekki viss um að ég vilji fara... :S Jáhh, svona er óákveðnin!!

Annars fór ég með Erlu að éta á Aski í fyrradag, mjög gott, Wishbonesamlokan klikkar sjaldan!! ;)
Fór líka að versla smá á Grundinni, 100 króna markaður þar í á miðvikudag og ég fann mér þenann yndislega peysukjól se ég elska núna!! Síð prjónuð peysa, alveg eins og er í tísku í dag, nema eflaust ekki margir sem eiga svona :haha:
Keypti líka þennan forláta SKRÆPÓTTA kjól, sem að ég er ekki alveg viss um að ég muni nokkurn tíman þora að nota, en við sjáum til ;) Þá er það bara 100 krónur í vaskinn, held þó samt að með peysunni hafi ég barasta gert ein bestu kaupin á ævinni! ;)

Jáhh, bilaðabílafréttir, bíllinn dó, endanlega að ég held, amk ætla ég ekki að láta gera við hann, held að þetta sé startarinn! 8|
Er að hugsa hvort að ég eigi bara að henda honum í vöku eða reyna að selja hann á einhverja þúsundkalla, tými bara engan vegin að setja hann í parta, enda búinn að vera stór partur af mínu lífi í hátt í 6 ár, og vá hvað ég græt góðan bíl!!! :cry::cry::cry::cry:

Maður er líka eitthvað svo heftur allt í einu! Þó að allir séu yndislegir og duglegir að skutla mér og svona, þá er einhvern vegin eins og maður sé ekki frjáls lengur!!
Kannski það sé ágætt, því að þá er maður ekki að bruðla eins mikið!!

Fór reyndar með Lilju í fyrradag á Hagkaupsútsölu, átti smá inneign þannig að ég eyddi ekki svo miklu, og sveimér þá, þá eyddi Lilja heldur ekki svo miklu! :lol:
Okkur tókst að vera mjög skynsamar!!!
Ég reyndar borgði mig upp af hreinlætisvörum, því ei veit maður hvort að þær eru af skornum skamti þarna úti eða hvað og ekki vil ég helst taka sénsinn á því! :lol:

Jæja, annars er bara fríhelgi framundan, ég er til í hvað sem er :D Endilega komið með einhverjar hugmyndir fyrir mig! ;)
Ætla að fara að leggja hausinn í bleyti, googla smá um Accra og skoða flug! ;)

Over and out


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 15:09:12 / snjolaugh

Hvar eru kommentin mín? :)

Halló! Það eru um 100 manns búnir að kíkja á síðuna mína í dag! En auðvitað enginn að kommenta! Held að þetta geti ekki verið rétt tala því að ég skil ekki að fólk sé að fara mörgum sinnum á dag inn á síðuna mína, og hvað þá að hundrað manns séu að skoða hana? :haha:
En já, ef þið eruð að skoða síðuna mína, þá þætti mér voðalega vænt um að fá eins og eitt komment! :) Finnst svo gaman að fá komment!

Allavega hvað er að frétta af mér? Ég er bara orðin vinnualki til að rifja upp gamla tíma, finnst reyndar hræðilegt að vera að vinna um helgar þar sem maður var orðinn nokkuð vanur því að eiga helgarnar frí, eða þá mjög stuttar vaktir, en þetta er bara gaman :) Vinna vinna vinna, væri reyndar alveg til í að fá örlítið meira en klukkutíma pásu á milli vinna, en maður mætir þá bara sveittur og sjúskarður í Sporthúsið ;)

Ég fór að djamma um síðustu helgi með Lilju og fullt af hressum Húsvíkingum, það var bara mjög gaman og var komin heim um 4 :)

Er annars ekki búin að gera neitt af ráði nema kíkja aðeins í saumaklúbb, fór með Erlu minni á Grillhúsið og jáhh, lítið annað!! 8| Rosalega á ég mér lítið líf þessa dagana!!

Og heldur engar fréttir af neinum ferðalögum :(

Úff held að ég sé hætt að blogga um mitt ömurlxxx líf!! :$

Svo er komandi helgi fríhelgi!!!! :haha::haha::haha::lol::lol::lol: Get ekki beðið sko!!!

Ætla þokkalega að sofa út og njóta þess!!!

Hitta skvísurnar mínar á föstudag og svo er ég alveg laus laugardag og sunnudag, einhver með einhverjar hugmyndir? :lol:

Rigningarkveðjur, Snjólaug :haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 16:00:52 / snjolaugh

Hrakfallabálkur!!

Ohh ég þoli ekki hvað ég er mikill hrakfallabálkur!!!! :cry:


Ég er svo mikill klunni, þoli það ekki lengur, ég held að ég sé mesti auli sem til er. :$


Í dag þegar ég var að fara heim úr vinnunni, haldiði ekki bara að ég hafi labbað á hurð takk!!!! :cry:8|


Og það ekkert smá skallað hana!! Við vinstri augabrún, fékk þessa massívu kúlu á ennið, horn réttara sagt, gat ekki sett sólgleraugun á mig og ekki opnað alveg augað fyrir kúlunni!!!! Fæ senilega MASSÍVAN marblett miðað við hvað ég fæ auðveldlega marbletti þessa dagana!!! :(

Labbaði á gluggakistu LÍKA í dag og er með feitan marblett á mjöðminni!!!


Og svo að ógleymdum skiptum sem ég læsi lyklana mína inni í bíl!!!!???

Ohh undir hvaða hrakfallastjörnu fæddist ég?????

Vá hvað maður verður stundum vonlaus þegar svona dagar líða, þegar maður veður í skít upp fyrir haus í vinnunni og finnst ekkert ganga upp!!! :(

Ég vill fá einhverjar góðar fréttir eða eitthvað jákvætt íkvöld!!! :cry:

 

Vonlausa Snjólaug 


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 16:34:27 / snjolaugh

Fréttir

Jæja, það fær þá enginn óvænta glaðninginn sem ég keypti úti!!! :haha: Ég ét hann þá bara sjálf með bestu lyst!!! :lol:

Allavega, ég er komin heim og byrjuð á vinnualkanum á ný, en þó bara tímabundið.

Ég ætla að segja ykkur aðeins frá heimferðardeginum mínum, byrjaði á því að sofa yfir mig takk! Fór all svakalega öfugt fram úr rúminu í þokkabót! 8| Missti auðvitað af strætó og lenti í miðru umferðartraffík! Jæja, svo á flugvellinum þá mátti allt í einu bara vera með 15 kíló takk!! 8| Jæja, þurfti bara að greiða þessa bév yfirvigt þá, enda ekki nema einhverjar 20 mín í flug!! :$ Það stóð nú samt hvergi að ég mætti bara vera með 15 kílóó á farmiðanum eins og maðurinn hélt fram.
Jújú, komst til Köben, steig þar í hundaskít á lestarstöðinni!!! :^):$
Villtist á strikinu!!! 8| Held að engum öðrum en Snjólaugu takist það afrek!
Komst svo að lokum heim þar sem að Lilja mín yndislega sótti mig! Takk ;)

Hmmmm hvað meira?

Helgina eftir að ég kom heim endaði ég á ógeðslega skemmtilegu djammi með Erlu, Birgittu, Sollu og tveimur vinkonum hennar. Myndir bíða betri tíma.

Um síðustu helgi fór ég svo í innflutningsteiti til Maríu þar sem allar voru mættar hressar og káar :) Fórum í bæinn en ég slysaðist eitthvað voða snemma inn í leigubíl og heim! Myndir bíða líka betri tíma.

Um næstu helgi er svo Októbersfestsdjamm í Háskólanum og ætlar maður að sjálfsögðu að skella sér í smá gleðskap í tilefni þess ;)

 

Annars er ég bara farin að vinna aftur, eins og fyrr sagði, á Grundinni góðu :) Fór reyndar ekki á sömu deild, heldur er á Alsheimer deild sem er lokuð, en ótrúlega fínt að vinna þar og yndislegt fólk, líka gömlu karlarnir!!:lol:

Svo verð ég næsta mánuðinn c.a. að vinna frá 8 til 12 á Grund og svo 13 til 19 í Sporthúsinu :) Gott að fá að breyta smá svona til, enda geta vaktir verið langar á Grund. Fæ þó allavega smá penge út úr þessu :)

 

Fór svo loksins í dag og gaf blóð, eftir 2 tilraunir sem mistókust :$  Gekk bara nokkuð vel og þær ekkert smá næs og höfðu svaka áhyggjur af manni, og þvílíkar kræsingar sem biðu mannst á eftir ;) Ekkert snakk, nammi eða gos samt!!! :haha:

Svo bara búin að vera dugleg í ræktinni, búin að ná af mér þessum aukaforða sem ég bætti á mig í Danmörku, og svona reyna að lifa aðeins  heilbrigðara líferni!! ;) :haha:

 

Er að hugsa um að hafa þetta gott í bili, en verið nú dugleg að kvitta fyrir komu ykkar hingað!! ;)
 


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 08:00:46 / snjolaugh

:)

Ég var að gera svona bulletin dæmi á Myspace, svara nokkrum spurningum, hef nú ekki oft tekið það að mér að svara svona, en það kemur fyrir :)

Ein spurningin var svona; if you could turn back time, what would you change?

Þetta er ótrúlega lúmsk og snúin spurning, ég fór að velta þessu mikið fyrir mér. Auðvitað myndi maður gjarnan vilja getað breytt nokkrum hlutum, og geta snúið tímanum örlítið vel, ef til vill nýtt tímann örlítið betur...

Eeeeen!

Ef að ég myndi geta farið aftur í tímann, og breytt þessu, þá hefði ég kannski ekki getað fengið að upplifa þetta.

 

Fyrst hugsaði ég með mér, Menningarnótt 2007.... Æji, kannski var það bara fyrir bestu.

Svo hugsaði ég með mér, Valið FB í tíunda bekk, en þá hefði ég ekki farið í FB, þá hefði ég kannski ekki kynnst Önnu, eða haldið sambandi við Eydísi, kannski hefði ég ekki farið að vinna í sjoppunni og ekki kynst Elísabetu og ekki kynnst yndislegustu stelpum sem ég þekki í dag! :lol:

Þetta er auðvitað bara keðjuverkun, og eflaust hefði maður kynnst allt öðru fólki en maður þekkir í dag, eflaust ekkert verra fólki, en ég myndi aldrei nokkurn tíman viljað hafa misst af því að kynnast og eiga þær vinkonur sem að ég á í dag. Þið eruð allar yndislegar og ég elska ykkur meira en allt elskurnar mínar!!! :lol:

Vælvæl :p :haha:

En ég komst samt sem áður að niðurstöðu með spurninguna, það er eitt sem ég óska þess að ég hefði getað breytt. Ég hefði viljað sitja hjá ömmu dánarbeðinu hennar. Ég hef sjálf unnið í mörg mörg ár á elliheimili, og maður séð svona hluti koma. En þegar maður sjálfur á í hlut, og manns eigin aðstandandi, þá er maður svo blindur! :( Ég vildi að einhver hefði sagt okkur hvað var í vændum. Ég hefði eflaust ekki trúað því, þó að ég vissi þetta svosem innst inni, en ég hefði setið við rúmið hjá ömmu minni heitinni og haldið í höndina á henni! :cry:

Það er það sem ég hefði viljað breyta

En nóg af svona væli, maður getur ekki breytt fortíðinni, og eins og ég segi, þá á maður ekki að sjá á eftir neinu. Hlutir gerast vegna þess að þeir eiga að gerast, það er alltaf einhver tilgangur. :)

 


 

Helgin var yndisleg í alla staði :)

Búin að hitta hana Boggu nokkrum sinnum, fórum á svokallað Boatrace á föstudag. Það byrjaði á nokkrum rigningardropum, en svo þegar leið á, þá var sko komin DEMBA!!! Vá hvað ég hef ekki lent í svona svaka rigningu lengi, amk ekki staðið úti í henni!! :haha: Boatraceið var þannig að fólk var í liðum og átti að búa til sína eigin báta, m.a. var einn báturinn búinn til úr dósum sem voru teipaðar saman! :haha: Liðin áttu að fara einhvern þrautarhring á tjörn, tvö og tvö saman, og sá sem vann komst áfram. Flestir enduðu á að vaða tjörnina eða syndaog draga bátana sína á eftir sér, fyndið! :) Við flúðum reyndar innfljótlega, enda rigningin ekkert að minnka. Fengum okkur nokkra bjóra og vorum orðnar nokkuð hífaðar um miðjan dag!! :lol:

Ákváðum engu að síður að skella okkur aðeins í bæinn í þessari óskapa rigningu og verslupum smávegis þar, m.a. keypti ég 2 kjóla í viðbót, þannig að mér VANTAR einhvern til þess að koma með mé rút að borða, þarf ekki einu sinni að bjóða mér, ég get sko alveg borgað fyrir sjálfa mig!! :haha: Anyways, kom svo heim um kvöldið, algjörlega gegndrepa, holdvot og niðurrignd!

Skemmtilegur og furðulegur dagur!! :haha:

Laugardagur var svo Íslendingagrill. Bogga og kallinn hennar Jakob, Cristina vinkona Boggu og Helgi vinur hans Danna komu hingað og við fengum okkur einn bjór og við stelpurnar fengum okkur eitt hvítvísnglas, ekki skemmir fyrir að flaskan kostaði innan við 200 kallinn.... :lol:

Fórum svo á þetta grill, rosalega góður matur, snilldargrillari :p Hittum fullt af Íslendingum, m.a. hitti ég eina stelpu sem var með mér á leikskóla! Sagði Christinu það og hún sagði, vá þetta er lítið land sem þið búið á!! :haha::haha:

Það er svo sannarlega satt!! :)

Jú heyriði, það flæktist inn í húsið þar sem að grillið var ein stærtsa könguló sem að ég hef á ævi minni augum litið, án þess að hún sé í búri!!! Ojoj og ullabjakk!!!! :cry: 

Ég komst svo að því í morgun að risaköngulóin er týnd! Hún er horfin!! Hún var alltaf á bakvið hurð, hreyfði sig ekki, en svo þegar ég leit þangað áðan, þá var hún horfin!!!! OMG!!! 8|8|8|8|8|8|

Ég gat alltaf vaktað hana á meðan hún var kjur, og vissi hvar hún var, en núna veit ég ekki hvar hún er, og hún gæti þess vegna farið að skríða upp bakið á mér næstu nótt!!! :cry: Ég var að vonast til að Danni hefði kannski tekið hana og hent henni út, en nei, hann gerði það ekki! :$ Ég er farin að læsa allt dótið mitt oní ferðatösku!! 8|

 

 Ég fór áðan með henni Boggu aðeins í bæinn og í mollið, fann mér tvenn pör af skóm, þá er það markmið komið, ekki slæmt, 2 pör á 300 kall ;) Hehe  Fengum okkur Pizza Hut sem að klikkar nú aldrei, alltaf jafn gott! :lol:

Er að bíða núna eftir hamborgarahrygg sem er í pottinum, slef!!! Maður kemur sko heim bara aðeins pattaðri!! ;) :haha:  Má það ekki annars þegar maður er í fríi? :lol:

Æji ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili, finnst ég alveg standa mig þrusuvel í þessu bloggdæmi þessa dagana, og ætla svo að koma mér í það að setja inn maaaaargar myndir hérna!! :) Og líka myndir af öllum nýju vinkonum mínum í Danmörku, köngulónum!!! :haha:

Fariði vel með ykkur!!!

 

P.s. sá sem kommentar númer 10 fær óvæntan glaðning frá mér við heimkomu!! Drífa sig svo í að kommenta fólk! ;) 


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 10:58:45 / snjolaugh

Fleiri dagar í Danmörku

Sælinú :)

Ég var að horfa á nýjasta Kompás þáttinn á netinu
http://vefmidlar.visir.is/?channelID=&programID=3a6059bd-b342-4012-8c77-6966f9a0abd2&mediaSourceID=6bcb4f1b-19a9-40bf-b568-1972af840fb2&mediaClipID=fc590d3f-a29b-456c-8019-7bee5099b06d
Æji, ég veit ekki hvað skal segja við þessu... Þetta er nótla bara pjúra ógeð! Þessi Róbert er nú ekki neitt augnyndi og frekar gamall gaur, hvað fær 14 ára stelpu til að vilja vera með svona hrukkudýri?? Hún hlýtur að vera illa skemmd greyjið! :$

En að öðrum skemmtilegri málefnum :)

Ég verð nú að segja, að ég er orðinn hálfgerður snillingur í strætó hérna í Álaborg! :haha: Ekki að það sé nú mikið mál, en samt, þegar það eru einhverjar tíu útgáfur af sama strætónum (2J, 2K, 2L osfvr.) þá getur maður orðið hálfsmeikur! En þetta er samt svo einfalt kerfi, held að þeir gangi allir sama hringinn, hef þó amk alltaf komist heim léttilega!! :lol: Og aldrei þurft að bíða lengur en örfáar mínútur! Meira að segja keypti ég mér strætókort! :) Það væri nú munur að strætókerfið á Íslandi væri svona einfalt! :$

Eins er ég búin að komast að því að það er bara fínt að hafa Rúv, Stöð 2 og Skjá 1 heima, því þegar þú ert kominn með einhverjar 50 stöðvar, þá getur verið erfitt að ákveða sig hvað maður á að horfa á! Og líka eyðir slatta tíma bara í að flakka á milli! :haha:

Já eitt sem ég gleymdi að minnast á seinast, allar þessar Köngulær í Danmörku!!!! OJ! :$ Þegar ég mætti á svæðið fann ég strax einhverjar 3 sem ég neyddi Danna til að hend út! Hann var notabene ekkert svakalega sáttur þar sem að þetta voru orðnar greinilega bestu vinkonur hans! Svo er ég sjálf búin að henda út einhverjum tveimur og veit um amk tvær í viðbót hérna inni!! :(

Annars er ég bara að láta mér leiðast núna, er alein heima, búin að eiga náðugan dag með snakk og nammi og horfa á Sjónvarpið og hanga í tölvunni, sweet!! :lol:

Ætla að halda áfram að láta mér leiðast og finna mér eitthvað að gera :)

Bæjó


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 16:10:50 / snjolaugh

Kveðja frá Álaborg

Hæhó ;)

Hér kemur smá kveðja frá Danaveldi :lol: 

Allt fínt að frétta héðan, er bara búin að vera að taka því rólega, hafa það náðugt, éta nammi, kíkja í búðir, horfa á video, drekka bjór, hvítvín og rauðvæin og borða osta! :haha:

Búið að vera misjafnt veður, þó meirihlutinn bara þokkalegt veður, annars er veðrið búið að toppa skalann frá Spánarsælu yfir í "fellibyl"!! :haha:

Hitti Boggu sinnep í bænum í dag og við kíktum í nokkrar búðir, verslaði mér enn einn kjólinn og pilsið, þannig að hér með óska ég eftir einhverjum til að bjóða mér út að borða á einhvern fínan stað (þarf ekki að vera Grillið eða neitt þannig, bara svo ég geti notað fínu kjólana mína alla ;) ).

Svo er eitthvað Íslendingagrill hér um næstu helgi sem ég ætla að skella mér á og neyða Danna með! ;) Ekki hægt að hanga heima alltaf öll kvöld!! :haha:

Það er dýragarður hér og Tívolí sem ég stefni á að testa, og svo bara áfram afslöppun og læti :)

Jæja, læt heyra í mér seinna, en sakna ykkar allra og verið dugleg að kommenta elskurnar mínar! :lol:

Snjólaug 


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 14:08:45 / snjolaugh

Fyrsta færslan :)

Sælinú :)
 
 
Jæja :) Nú er maður búinn að gera eina tilraun í viðbót til að halda úti bloggi hér á bæ :) Sjáum hversu lengi það endist :)
 
 
 
Hvað er svo Snjólaug búin að vera að gera af sér undanfarna mánuði?
 
Snjólaug átti afmæli 14. júlí: Var með smá kökuboð og partý með Robba um kvöldið :)
 
Snjólaug og Elva fóru til útlanda 16. júlí :) Sú ferð er nóg í aðrar færslur :)
 
Verslunarmannahelgi 2007 á Siglufjörð: Innilega og þrusustuð :)
 
Fjöldinn allur af partýjum hér og það :)
 
 
 
Hvað er svo Snjólaug búin að vera að gera af sér undanfarnar vikur?
 
Fór í Jökulsárlón á mánudegi einum með Mitch og Brynjari í snilldarlegu veðri :)
 
Hætt á Morgunblaðinu :)
 
Búin að vera edrú í rúmar 2 vikur :haha:
 
Búin að fara nokkrum sinnum nýlega í bíó, m.a. á myndirnar The Bridge, Shortbus, Disturbia og Knocked up :)
 
Búin að fara í nokkrar fínar kaffihúsaferðir með fínu fólki :)
 
 
Já, er semsagt bara í "sumarfríi" núna, s.s. búin að liggja upp í rúmi alla
vikuna að gera ekki neitt, jú einstaka sinnum kíkt út, reyndar fékk ég einhvern flensuskít á miðvikudag en var orðin ágæt á föstudag, búin að fara tvisvar í ræktina í síustu viku, ljúft líf að hugsa bara svona um sjálfan sig :)
Veit ekkert hvað ég er að fara að gera af mér, en um leið og ég finn eitthvað að gera skal ég láta ykkur vita! :)
 
 
Er að fara til danmerkur á miðvikudag, að heimsækja Danna vin minn í nokkra daga, og ætla í leiðinni að reyna að hitta á Lilju, sem ég hef ekki séð allt of lengi! :) Get alveg eins hangið á rassgatinu þar og borðað í nefið og hér! :haha: Kíki kannski á einn eða tvo skóla þar í leiðinni og aldrei að vita nema maður sæki um skólavist þar næsta haust. Það er amk stefnan, að drattast í skóla í haust :) Kannski ef þið verðið góð fáiði eina djúsí færslu þaðan! ;)
 
 
Erla og María eru komnar í litlar sætar íbúðir á vegum Háskólans, ekkert smá kósí og notalegt og það á líklegast eftir að verða manns önnur heimili í vetur! :haha:
 
 
Ætla ekkert að hafa þetta neitt of langa færslu, svo fólk nenni kannski að lesa þetta! :)
 
 
Er samt að taka til í öllu hérna, búin að henda út flestum linkum sem fólk er hætt að blogga, en þætti vænt um, ef að einhver er með einhvers konar síðu og ég veit ekki af, og ég má vita af, að láta mig vita :)
 
 
Búin að henda út gömlum myndum, á þær samt allar í tölvunni ef einhver vill fá gamlar myndir :) Er á fullu að setja inn nýjar myndir, þarf að setja sumar inn tvisvar þar sem að öllum myndunum mínum var hent útaf síðunni sem ég hef geymt myndirnar mínar á :$ Merkti eldri myndir 2007, og nýjar myndir 2007, það eru allt nýjar myndir ;)
 
 Jæja gott fólk, bara muna eftir að kommenta! :)
 
Snjólaug 

» 5 hafa sagt sína skoðun


�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1669 dögum
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti